![]() |
| Við erum flottu bræðurnir Tómas Freyr, Haraldur Daði og Bjarni Dagur :) Nýjar myndir 9 feb |
|
|
Gullmolarnir :)
Tómas Freyr fæddist laugardaginn 12.júní 2004 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Fæðingin gekk alveg eins og í sögu og klukkan 21:09 fæddist þessi myndarlegi drengur sem var tæpar 15 merkur (3650 gr) og 51 cm. Hann var með skollitað hár og blá augu (eins og svo margir Íslendingar) og var án efa sætasti strákurinn á svæðinu:) Ljósmóðirin sem tók á móti honum heitir Steina Þórey Ragnarsdóttir og var hún alveg yndisleg.
Haraldur Daði fæddist á Herlev Sygehus í Kaupmannahöfn, þann 30 mars 2006, klukkan 12:30. Mamman segir að þetta hafi verið draumafæðing, 5 tímar frá fyrstu verkjum ef að það kölluðust verkir :) Haraldur Daði fæddist rúmar 17 merkur (4350 gr) og 54 cm, og var hann voðalega líkur bróður sínum þegar hann fæddist, báðir svo ótrúlega vel skapaðir :) Bjarni Dagur fæddist líka í danaveldi á Herlev Sygehus, þann 10.maí 2009, klukkan 9:17. Hann kom syndandi í fangið á mömmu sinni eftir ótrúlega hraða fæðingu, mamman og pabbinn komu upp á spítala klukkan 8:00 og prinsinn var fæddur rúmlega 9 :) Bjarni Dagur var 3960 gr eða um 16 merkur og 55 cm. Fjölskyldan skellti sér síðan bara heim um hádegi sama dag og prinsinn fæddist og þar biðu stoltir stóru bræður :) Stoltu foreldrar okkar heita Jón Ragnar Ástþórsson (76) og Þórunn Katla Tómasdóttir (83). Við búum í Kaupmannahöfn, pabbi okkar er í mastersnámi í viðskiptafræði í CBS og mamma okkar er leikskólakennari. Við erum Suðurnesjafólk í húð og hár, en pabbi minn vill meina það að við bræður séum Garðbúar :) Endilega kvittiði fyrir komuna í gestabókina, það er svo gaman að sjá hverjir koma í heimsókn
Þýðingar á fallegu nöfnunum okkar :) Tómas
Nafn þetta er fengið úr biblíunni, frá Tómasi sem var einn af lærisveinum Jesú. Þaðan kom nafnið úr grísku þar sem það merkir tvíburi. Freyr
Nafn þetta er fengið úr norrænni goðafræði og kemur af frumnorræna orðinu "frauja" sem merkir hinn fremsti, - herra.
Haraldur
Nafn þetta er samsett af forliðnum "Har" sem merkir her og viðliðnum "valdur" sem merkir ræður yfir, - hefur stjórn á. Daði
Séríslenskt nafn, þekkt allt frá 10. öld. Uppruni þess er óviss en ýmsar kenningar á lofti um merkingu þess, s.s. að nafnið merki dáð eða að það hafi upphaflega orðið til upp úr barnamáli fyrir orðið faðir.
Bjarni
Nafn þetta er veik beygingarmynd af nafninu Björn og Brynjar Merkir: Nafn þetta er myndað af forliðnum "Bryn" sem merkir herklæði og viðskeytinu "ar" sem merkir hermaður. Dagur
Nafnið merkir Dagur. |
|
|
Annað:
Tómas Freyr er 5 ára. Hann er lífsglaður og orkumikill strákur :) Hann er ótrúlega heimakær og finnst ekkert skemmtilegra en að hafa "hyggekvöld" heima með mömmu og pabba. Tómas Freyr er mjög mikill fótboltastrákur, pabba sínum til mikillar ánægju :) Hann var farin að sparka í bolta áður en hann var farin að labba, alveg eins og pabbi sinn. Hann er ótrúlega ábyrgðarfullur og passar litlu bræður sína ótrúlega vel :) Það sem þessi drengur tekur sér fyrir hendur gerir hann 100%, svo pottþéttur er hann :)
Haraldur Daði er 3 ára VILLINGUR, það sást strax við fæðingu að hann var kröftugur, hann var farinn að halda höfði, velta sér og lyfta sér upp mjög snemma. Hann er ótrúlega mikil félagsvera, einstaklega ófeiminn og er GRALLARI af guðs náð :) Tómas Freyr og Haraldur Daði eru svart og hvítt, litli bróðir er ormurinn á heimilinu :) Hann hefur sko skap, það er alveg á hreinu, og getur sko látið heyra í sér ef að honum mislíkar eitthvað, það er alveg á hreinu að þetta yndislega barn er mesti þrjóskuhaus sem fyrir finnst á jörðunni ;) Hann er svo mikið sjarmatröll og laðar alla að sér :) Bjarni Dagur er nýjasti prinsinn :) stór og flottur strákur sem byrjaður er að hjala og hlægja :) En umfram allt eru þeir heilbrigðir og yndislegir drengir :)
Tómas Freyr er Tvíburi
Óþolinmótt eftir að hefja leikinn er líklegt að tvíburabarnið hafi sparkað duglega í móðurkviði. Tvíburabörn eru líkleg til að byrja snemma að tala og þau segja sína skoðun frá byrjun. Þau eru mjög forvitin í eðli sínu og þurfa því alltaf að hafa eitthvað fyrir stafni. Þau eiga mjög erfitt með að sitja kyrr og eiga mjög erfitt með að þegja. Athyglin beinist stöðugt að nýjum viðfangsefnum en áhuginn hverfur oft mjög fljótt. Tvíburarnir þurfa mikla örvun og hyggilegt er að leikföng þeirra séu margvísleg og vitsmunalega þroskandi, svo sem púsluspil og þrautir af ýmsu tagi. Því fyrr sem tvíburabarnið kemst í hóp annarra barna því betra því tvíburarnir elska félagslíf enda hafa þeir mikla samskiptahæfileika. Líf og fjör er tvíburum að skapi. Yfirleitt er tvíburinn bráðþroska vitsmunalega og því nauðsynlegt að sinna þessum þætti í uppeldinu með því að reyna að svara t.d. spurningum hans (þær eru reyndar oft ansi margar) og ræða við hann. Litlir tvíburar eru oft stríðnir og hrekkjóttir en það ber ekki að taka of alvarlega því yfirleitt er meiningin ekki slæm. Hann grípur oft til prakkarastrika til að hrista upp í umhverfinu því hann hefur ríka þörf fyrir tilbreyting Haraldur Daði er Hrútur
Rambó leikfélaganna er mættur á svæðið. Með barn í hrútsmerkinu mega foreldrar búast við miklu fjöri á heimilinu því það ríkir engin lognmolla í kringum hrútinn. Ekki ætlast til þess að barnið sitji kyrrt með hringlu. Þetta er barnið sem veifar þér ofan af hæsta tré, alls óhrætt við að taka áhættu. Hrútsbarnið er allt annað en hljóðlátt og lætur oft vel í sér heyra. Sem eldsmerki er hrúturinn orkumikill og hefur ávallt eitthvað fyrir stafni. Verður erfitt að ráða við litla hrúta? Það er líklegra en ekki. Foreldrar ættu eins fljótt og hægt er að kenna þessu barni að vinna með öðrum börnum. Að deila einhverju með öðrum er eitthvað sem kemur ekki af sjálfu sér – það þarf að kenna litlum hrútum. Þeir eru einnig ákaflega tapsárir. Þeir þrá athygli og eiga mjög auðvelt með að verða sér úti um hana með ýmsum aðferðum. Hrútar eru fæddir leiðtogar og ef þú ætlar að hafa eitthvað að segja er betra að láta þá vita með afgerandi hætti hver er við stjórnvölinn því annars er eins líklegt að stjórnin verði tekin úr þínum höndum. Lítill hrútur er oft eins og ótemja, lítið gefinn fyrir að hlýða reglum og vera þægur nema þegar honum hentar. Vegna þess hve hann er orkumikill er nauðsynlegt að hann fái mikla hreyfingu. Hann verður að fá að hlaupa um og róta til heima hjá sér. Ef hann fær ekki útrás fyrir orkuna verður hann pirraður og ergilegur. Honum líður best í lifandi og fjörugu umhverfi. Þar sem fljótfærni og óþolinmæði eru meðal veikleika hans þarf að kenna honum að hægja á sér og telja upp að tíu áður en hann rýkur af stað. Einnig þarf að venja hann á að ljúka því sem hann byrjar á. Bjarni Dagur er naut
Foreldrar barns í nautsmerkinu þurfa að vera næm á mikla þörf þess fyrir snertingu. Þetta eru bestu knúsarar í heimi. Besta aðferðin til að ná til lítilla nauta er að höfða til skynsemi þeirra og tilfinninga. “Elsku litla stelpan mín, viltu gera þetta fyrir mömmu?” Fá naut standast nefnilega blíðu. Þægindi er eitthvað sem nautið vill. Notalegt herbergi þar sem hvorki er of heitt eða kalt, bragðgóður matur, falleg leikföng er eitthvað sem fellur nautinu í geð. Börn í nautsmerkinu eru frekar róleg og friðsöm og yfirleitt fer kannski lítið fyrir þeim. Það borgar sig ekki að reka á eftir þeim með hluti því þau vinna á sínum eigin hraða, sem er annar en gengur og gerist. Nautið er með báða fætur á jörðinni og vill vera öruggt um að hvert skref sem stigið er sé rétta skrefið. Ef rekið er á eftir því verður það óöruggt. Það borgar sig ekki til að fá litla bolann til að hlýða með skipunum eða skömmum því nautin eru þrjósk með eindæmum og sá eiginleiki sýnir sig vel þegar slíkt er reynt. Það getur verið erfitt að eiga við nautsbarnið þegar það hefur bitið eitthvað í sig og heimtar eitthvað sem gengur þvert á vilja foreldranna. Best er þá að setjast niður með bola litla og reyna að útskýra af hverju betra sé að gera þetta eða hitt, þ.e. höfða til skynseminnar. Rökin þurfa að vera skynsamleg og nautið þarf að fá tíma til að hugsa málið. Ef nautið er af rólegu gerðinni er vissara að ræða reglulega við það og fá það til að tjá sig og vinna þannig hægt og sígandi gegn feimni þess og hlédrægni. Naut þarfnast þess að vera í öruggu umhverfi og vita við hverju er að búast þannig að mikilvægt er að foreldrar séu sjálfum sér samkvæmir gagnvart því.
ELSKU MAMMA OG PABBI... Ég er með svo litlar hendur,ég ætlaði ekki að hella niður mjólkinni. Fæturnir á mér eru svo stuttir,farðu hægar svo ég geti fylgt þér. Ekki slá á hendurnar mínar þegar ég snerti eitthvað fallegt,ég skil það ekki. Horfðu á mig þegar ég er að tala við þig,þá veit ég að þú ert að hlusta. Ég hef viðkvæmar tilfinningar,ekki vera alltaf að skamma mig. Leyfðu mér að gera eitthvað vitlaust án þess að þér finnist ég vitlaus. Ekki búast við því að myndin sem ég teikna eða rúmið sem ég bý um sé fullkomið. Elskaðu mig bara fyrir að reyna. | View | Add Favorite
Til elsku drengjana okkar.
Áður en þið urðuð til þráðum við ykkur. Áður en þið komuð í heiminn elskuðum við ykkur. Áður en þið höfðuð lifað eina stund hefðum við fúslega dáið fyrir ykkur. Þið eruð kraftaverk lífsins Takk fyrir að vera til.
Amelía Rún
Andrea Ósk
Auðunn Fannar
Emelíana Líf
Gabríel Aron
Íris Ósk
Ísabelle
Kristjana Bríet
Lovísa Ósk
Nadía Líf
Natalía Tinna
Snæfríður frænka
Svala Rún
Tumi, Ævar og Emil
Unnur Marín og Andri Þór
Þorsteinn Már
|
| Þú ert gestur nr. 50332 |